Skilmálar

Skilafrestur

Almennur skilafrestur vöru er 30 dagar en gerð er krafa um framvísun á greiðslukvittun eða sambærilegri staðfestingu viðskipta s.s. greiðslukortayfirliti.
Vara sem sannarlega telst gölluð er ávallt hægt að skila gegn kassakvittun eða sambærilegri staðfestingu viðskipta s.s. greiðslukortayfirliti.
Verðmæti skilavöru miðast við verð vörunnar skv. greiðslustaðfestingu. Ef staðfesting er ekki til staðar miðast verðið við verð vörunnar í vefverslunni við skil.

Sendingarkostnaður

Pantanir hjá Tundru vefverslun eru sendar með Póstinum. Sending er frí fyrir pantanir fyrir 25.000 kr. eða meira (á pósthús). Fyrir pantanir upp á lægri upphæð en 25.000 kr. er sendingargjald (á pósthús eða í póstbox) 1.500 kr., en 2.000 kr. (borið heim að dyrum). Sending er frí til Bandaríkjanna og Kanada ef pöntunin er upp á 50.000 kr. eða meira. Sendingarkostnaður fyrir pantanir að lægri upphæð en 50.000 kr., frá Bandaríkjunum og Kanada, er 4500 kr. Sending er frí til landa Evrópu ef pöntunin er upp á 50.000 kr. eða meira. Sendingarkostnaður fyrir pantanir að lægri upphæð en 50.000 kr., frá Evrópu, er 3500 kr.
Enn sem komið er sendir Tundra ekki til landa utan Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada.

Verð

Verð á Tundru vefverslun eru í íslenskum krónum (ISK) og með 24% virðisaukaskatti. Tundra vefverslun áskilur sér rétt til að breyta verðum fyrirvaralaust.

Inneignarnótur

Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá inneignarnótu sé vöru ekki skipt í aðra vöru í stað þeirrar sem skilað er. Sé vara gölluð getur viðskiptavinur fengið endugreitt með greiðslu inn á kort. Eins getur viðskiptavinur valið um að fá nýja vöru og eða inneignarnótu.

Útsöluvörur

Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu nema ef að um gallaða vöru sé að ræða. Sé varan gölluð er verðmæti skilavöru miðað við verð vörunnar skv. greiðslustaðfestingu. Ef staðfesting er ekki til staðar miðast verðið við verð vörunnar í verslun við skil.

Greiðslur

Tundra-vefverslun tekur á móti öllum kreditkortum. Greiðslur fara fram á vegum Borgunar ehf og á sértæku öryggissvæði sem er dulkóðað. Viðskiptavinur er færður í öruggt umhverfi þar sem allar upplýsingar eru dulkóðaðar.

Afgreiðsla pantana

Eftir að vara er pöntuð og greidd berst pöntunin til starfsmanns Tundru vefverslunar. Mun starfsmaðurinn taka til pöntunina innan 2 virkra daga. Varan er send með Póstinum bæði innanlands og utan. Heildar afgreiðslu- og sendingartími er áætlaður 4-10 virkir dagar innanlands en um 9-16 dagur sé pöntun send erlendis.
Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.

Annað

Tundra vefverslun áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun vegna ýmissa tilfallandi aðstæðna. Þar á þó helst við aðstæður eins og rangar verðupplýsingar, myndbrengl, rangar merkingar vöru eða rangrar birgðastöðu.
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar um nafn, netfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandi að þessar upplýsingar fari í gagnagrunn Tundru vefverslunar. Hins vegar ábyrgist Tundra vefverslun að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki látnar þriðja aðila í té.
Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlegast hafi samband með tölvupósti á netfangið info@tundra.is.

Lögsaga og varnarþing

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.
 
Eigandi Tundru vefverslunar er rekstrarfélagið Vitaðsgjafi ehf., kt. 6408050800, VSK nr. 87703, Heimilisfang: Hólabak, 541 Blönduós. Sími: +354 8930103.